loksins Tyrkland
skila kvedju til allra
September? :/
Sumariđ nánast búiđ :/
Nóg er búið að vera að gera og búin að kynnast fullt af frábæru fólki í vinnunni, sem ég verð btw í fram á vetur. Ég er búin að fá áfram í Fríhöfninni allavega fram í desember. Sem er ágætt, fyrir utan það að það vantar þá allar krúsídúllurnar mínar sem verður skrítið. Við erum búin að gera svo margt skrítið í og utan vinnu við fólkið þarna í Duty, við tökum mikið uppá því að fá okkur í glas á virkum dögum fyrir vinnuhelgi, sem gerir reyndar helgina MUN auðveldari því maður er þá búinn að gera e-ð skemmtilegt. Komum m.a. nokkrar saman hérna heima um daginn þegar Mamma og Pabbi voru í sumarfríi og við fengum okkur Strawberry Daiquiri, SunLolly skot o.fl skemmtilegt, skoppuðumst í pottinn og fengum okkur Abú :)) ýkt gaman. Svo fórum við einusinni á miðvikudegi í útilegu einhver 30 stykki eða e-ð.
Framundan hjá mér er svoKýpur2007 hittingur í Skagafirði þar sem við erum með bústað á leigu og bókað í Rafting á laugardeginum. Þetta verður algjör snilld! Ekki skemmir fyrir að Valdi á afmæli :D
Svo eru það Sandgerðisdagarnir, sem ég vona að verði skemmtilegir, ég er LOKSINS í fríi. Alltaf verið að vinna þegar þeir eru. :/ Það verður ball í samkomuhúsinu með Á móti sól! ágætis hljómsveit en kostar pottó 2500kr inn, svo ef það verður opið á Mamma Mía gæti ég trúað að það verði stemming þar eins og í fyrra.
En kem kannski með eitt snöggt eftir helgi og hendi inn myndum og svona skemmtileg heit af helginni :)
Sakna allra sem ég er ekki búin að sjá lengi!
og já til Hamingju með Afmælið Eva mín! :D
Tree Lane 1110-2-2B
Án allra fordóma ...
Í vinnu minni þarna uppfrá afgreiðir maður alskyns útlendinga, stóra sem smáa og mis góða í ensku. Einnig sér maður mikinn mun á fólki frá mismunandi löndum. T.d. er einn hópur fólks sem rífur upp allar vörur, og opnar ekki aðeins óinnpakkaðar vörur heldur rífur innsiglingar og plast af vörum aðeins til þess að skoða eða finna lykt, þrátt fyrir að það séu testerar. Síðan er það annar hópur fólks sem talar og talar við mann á sínu móðurmáli og maður stendur þarna eins og þvara og skilur ekki bofs, svo reynir maður að útskýra fyrir fólki að maður skilji ekki neitt það sem það er að segja þá fer það bara í fýlu og snýr sér undan eða heldur áfram að tala við mann á óskiljanlegu hrogna máli. Er samt ekki að segja að það sé aðeins fólk frá þessum löndum sem gerir þetta, en þetta er áberandi mikið hjá fólki frá þessum löndum.
Á föstudagskvöldið voru tvær vélar að fara út, og og voru báðir hópar þessa fólks að fara út, og aðeins þessir tveir hópar, og maður var þarna eins og ég veit ekki hvað að reyna gera sig skiljanlegan á ensku og enginn skildi það sem maður var að segja. Við þurfum að fá að vita hvort fólk sé að fara í tengiflug því ef svo er þurfum við að innsigla vökva sem þau voru að fjárfesta í svo þetta sé ekki tekið af þeim, og enginn skildi neitt, horfði bara á mann og brosti sólheimagloti...
Ég segi nú bara, ef þú getur ekki gert þig skiljanlegann í landi sem þú ferðast í átt þú bara að vera heima hjá þér, og hana nú!!
Reyni nú að giska á hvað fólk þetta er, rosa forvitin að vita hvort þið fattið :P
Orđin 20 ára og stúdent! :D
Sorry með bloggleysið og seinkuna á myndum. Nennti þessu ekki maðuurr!
útskriftin gekk eins og í sögu, djammið eftir á var geggjað og veislan hérna heima var frábær í alla staði. Ég vil þakka kærlega fyrir mig allir þeir sem komu og nutu þessara stundar með mér.
Það var skrítin tilfinning að fara frá laugum eftir góða helgi með krökkunum. Ég sakna allra svo mikið núna, ég get ekki líst því. Þessi helgi var snilld og það var snilld að vera að fá sér aðeins í aðra tánna á skólasvæðinu, uppi á bókasafninu og niðrí í sundlaug, meira segja í matsalnum!
Ég er byrjuð að vinna í Duty free, það er fínt, frekar langar vaktir en það er bara frábært fólk að vinna þarna og endalaus gleði.
Ekkert bólar á íbúðinni hjá mér og Helga en þessir biðlistar ganga heldur hægt. Við erum ekki búin að haggast niður á við í meira en mánuð, en í eitt skiptið fórum við upp á við. Vonandi að þetta fari að koma, get ekki beðið eftir því að flytja. :)
En til hamingju með daginn kæru krakkar mínir og endilega skoðið myndirnar og kommentið ...
lov lov
Seinasti skóladagurinn...
Húfurnar eru komnar og mín passar alveg fullkomlega, svo eru skartgripirnir uppá pósthúsi og ég bíð eftir því að allir leggi inná mig, sem verður að gerast fyrir fimmtudag, því annars fáum við enga skartgripi. Ég pantaði mér hálsmen sem stendur á Laugar '08 og svo stjörnu í húfuna sem stendur líka á Laugar '08. Voða flott. Ég á enn eftir að finna mér dressið og ætlar Iðunn að taka mig í búðaráp þegar ég kem heim. Hún er svo klár í þessum málum og mér hlakkar til að eyða tíma með henni, því það er orðið aaansi langt síðan.
Ég er búin með öll verkefni sem ég þarf að gera nema klára oggu í stærðfræði og ætlar Hallur stærðfræðikennari að aðstoða mig við það svo þarf ég að skrifa nokkrar línur fyrir Náttúrufræði en ég verð lítið í skólanum í dag því ég er fulltrúi nemenda í skólanefnd og verð ég að mæta á seinasta fundinn, en hann byrjar á því að nemendaaðstaða verður vígð í gömlu sundlauginni. Ég var þar í gær að horfa á sjónvarpið og þetta er svo mikil snilld. Maður situr á botninum á lauginni í ýkt þægilegum sófa og það er búið að setja skjávarpa og hljóðkerfi svo maður horfir á riiisa skjá og hefur það fínt. Skrítið að sitja þarna líka þegar maður var einusinni syndandi þarna eins og vitleysingur!
Í dag eru sex dagar þar til ég kem heim og verður nóg að gera hjá mér, ég fer á 3 námsskeið vegna vinnunnar og ég þarf að fara í klipp og lit, neglur og augabrúnir og síðast en ekki síst finna föt og skó. Þetta verður ævintýri.
Bið að heilsa krakkar mínir!
Ella ofurspennta og næstum stúdent!
Ljótir Hálvitar og 16 dagar í heimför!
no title... :)
góðan og blessaðann föstudag!
Jii það liggur svo vel á mér núna.
Nokkrir dagar í heimferð og árshátíð, gistingu á Hótel Loftleiðum. þetta verður draumur í dós..
Sædís sæta lánaði mér geggjaðan kjól og ég er baaara heppin að ég passaði í hann, enda er hún 100kg léttari en ég..
Söngkeppni framhaldsskólana er á morgun og er lagið okkar svo geggjað, ég heyrði í Hjalta og Einari vera að æfa sig í gær í næsta herbergi. Líst helv. vel á þetta :)
Laugar komu í Kastljósinu í gær. Valbjörg vissi ekki hvað hún átti að segja.. heheh
En ástæðan fyrir því að the kids komu var sú að þau fóru í meðmælagöngu (meðgöngu hohoh). Þau voru s.s. að mæla með öllu góðu í heiminum, ég hefði skellt mér með ef ég hefði ekki verið að fara vinna. Alltaf þarf allt að gerast á miðvikudögum þegar ég er að vinna.
Ég er að fara vinna svo í kvöld kl 18:00 til 03:00 eða lengur. Allir að koma í Baukinn í kvöld and keep me company.. ;) svo fer ég að vinna á sunnudaginn, þannig að ég get ekki djammað mikið á laugardaginn, sem er kannski í lag, búin að djamma svolítið mikið undanfarin :)
Ég er LOKSINS búin að finna útskriftarkjólinn minn, pantaði hann á Victoria's secret. Hann er hvítur og ég læt mynd fylgja með, sem hann er reyndar rauður á. Vonandi passar hann svo bara vel á mig :) Næst þarf ég bara að finna skó, sem verður örugglega vesen, því allir skór á Íslandi kosta morðfjár!
En lifiði í lukku en ekki krukku krúttin mín ...
Feđgin sem eiga barn saman biđja um skilning -- ég fć bara ćluna upp í háls!
Áströlsk feðgin, sem sakfelld hafa verið fyrir sifjaspell, komu fram í fréttaskýringarþættinum „60 Minutes“ í gærkvöldi og báðu um viðurkenningu og skilning á ólöglegu sambandi þeirra. Þau eiga saman níu mánaða gamalt barn.
Jenny Deaves var 31 árs gömul þegar hún kynntist föður sínum, John, á nýjan leik eftir tæplega þriggja áratuga aðskilnað. Fljótlega fór hún að líta á hann sem kynveru. „Ég og John erum tveir fullorðnir einstaklingar,“ sagði hún og var að ítreka að þau bæði væru sátt við sambandið. „Við viljum einungis njóta skilnings og virðingar.“
Níu mánaða gamalli dóttur þeirra heilsast vel. John telst vera faðir barnsins en einnig er hann afi hennar. Hún er þriðja barn Jenny en hún á tvö börn fyrir úr öðru sambandi.
Samkvæmt Jenny þá fór hún að líta á föður sinn sem einstakling fyrst og fremst frekar en föður og henni þótti hann alls ekki illa útlítandi. John segist hafa vitað það fullvel að það væri ólöglegt að stunda kynlíf með dóttur sinni en hann hefði hreinlega ekki getað ráðið við sjálfan sig. „Tilfinningarnar tóku völdin. Ég vissi að þetta væri ólöglegt en hvað með það, hugsaði ég,“ sagði John.
Feðginin eru á þriggja ára skilorði eftir að hafa verið fundin sek um sifjaspell. Meðal skilyrða er að þau mega ekki njóta líkamlegs samneytis. Í dómsúrskurðinum kemur fram að parið eignaðist barn árið 2001 en það lést við fæðingu vegna hjartagalla.
Dómarinn í málinu sagði að aðstæður hefðu að mörgu leyti verið mjög óvenjulegar. Hér var ekki um þvingun að ræða af hálfu föðurins og því var dómurinn ekki þyngri en raun bar vitni.

Henni fannst hann svo sætur!! Hérna er pabbinn, afinn, mamman, dóttirin og barnabarnið. 
